fimmtudagur, mars 23, 2006

Eitthvað lítið að frétta úr B4 í dag.
Nema hvað ég er heilaum í kjaftinum eftir hamfarir tannsa í morgun. Engin hola sagði Lísalotta og brosti svo það glampaði á gullskrautið á augntönn hennar :-)
Talandi um að vera helaum... ég er svo undirlögð af harðsperrum að ég get nánast ekki hreyft mig! Haldiði að maður hafi ekki loksins drattast í ræktina eftir margra ára hlé!! Ég mætti með möraðan rassinn í eftirdragi í nýja gymmið hérna í Lystrup. Sveitalegasta stöð sem ég hef æft í, en hún gerir greinilega sitt gagn! Ég náttla réðst ekki á garðinn sem hann er lægstur heldur byrjaði á því að fara í kickboxing tíma... ómægod. Leið bara eins og ég væri mætt á handboltaæfingu hjá Kristleifi og Hadda hérna í denn :´) Hlaupa fram og aftur um salinn, til hliðar og svo krossa og bakka já og svo spretta!!! Ekkert eitthvað hliðar saman hliðar kjaftæði hjá Massa boxara! Svo voru það bara boxhanskarnir og kýla úr sér allt líf! Hrikalega gaman og dásamlegt að vera farinn að hrista á sér dellurnar aftur hehe Verð komin í kjólinn fyrir jólin með þessu áframhaldi :-)

5 Comments:

Blogger Helga said...

Hahaha gat ekki annað en brosað yfir þessum æfingum í ræktinni hjá ykkur. Það mætti halda að þið væruð í sveitinni. Dugleg að drífa þig af stað, gó girl...

5:53 e.h.  
Blogger Bippi said...

Já, þú hefur þorað á handboltaæfingar hérna í denn. Svana var alltaf að reyna draga mig með sér en mér fannst þjálfararnir svo miklir töffarar að ég þorði ekki.......:o/

10:18 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég fór einmitt á æfingarnar af því að þjálfararnir voru svo miklir töffarar...
Var einmitt að spá í að fara að byrja í ræktinni og svona sem upphitun gerði ég magaæfingar og armbeygjur á meðan ég horfði á The biggest looser í sjónvarpinu. Og ég get sagt þér að það var varla að ég gæti haldið á Rósu daginn eftir útaf harðsperrum. Já maður var örugglega í betra formi á handboltaæfingunum í denn!

12:27 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Go for it, svo er bara að bomba í pokana, B-O-B-A......

11:55 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Djöfull ertu flott!!!!

Ekkert betra en duglegar harðsperrur.
Náði aldrei þessu með handboltann samt. Dútla bara í mínu hliðar saman hliðar og upp með hné.

Baráttu kveðjur.
Koma svo, taka á þessu.
Knúsilús
Aldís

5:19 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home