föstudagur, mars 31, 2006

Við mæðgurnar fórum áðan að skoða leikskóla hérna í Lystrup sem Ylfu hefur verið boðið pláss í. Henni leist rosalega vel á og fannst þetta allt voða spennandi. Þessi elska, hún tekur því ótrúlega vel að þurfa að skipta um leikskóla enn einu sinni... Held að þetta leggist eitthvað verr í mömmu hennar sem finnst hún vera Vonda mamman að gera dóttur sinni þetta :-( En okkur finnst mikilvægt að hún sé í leikskóla hérna í Lystrup síðasta veturinn og kynnist krökkum sem hún kemur til með að fara í skóla með. Ohh hvernig datt mér í hug að flækja líf barnanna svona...........

En föstudagur til frægðar og góð helgi framundan!

Vöfflukaffi í B4 á morgun :-)

Láttu sjá þig!

10 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Það er frábært að hún er komin með pláss í leikskóla nálægt. Tala nú ekki um þegar Ylfa er svona jákvæð á þetta allt saman. SKiljanlega á mamman bágt, hugg, hugg...

Gangi ykkur vel og bið að heilsa í kaffið á morgun

Kveðja
Helga Bumbulína....

7:48 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Já þetta er örugglega erfiðara fyrir foreldrana en börnin. Strákunum er keyrt í skólann á hverjum degi, ca 30 mín. hvor leið og það er skóli hér útá horni. Get bara ekki hugsað mér að láta greyin þurfa að skipta um skóla aftur en sennilega tæki það tvo daga að kynnast nýjum vinum!
Og af því það er nú kominn 1. apríl í Ástralíu þá segi ég TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ ELSKU VINKONA :)

11:30 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Til hamingju með afmælið kæra vinkona og ég væri sko til í vöfflur hjá þér. Já ég skil þig vel með breytingarnar hjá Ylfu en ef hún er jákvæð og hress með þetta þá bara fínt! Bestu kveðjur til ykkar og hafðu góðan dag. Knús Svava

10:42 f.h.  
Blogger Gudbjorg said...

Þetta fer allt vel, þau eru órúleg þessi krakkar, það eru einmitt oftast við sem eigum erfitt með allt svona. En í dag er kominn góður dagur. Til hjartans lukku kæra vinkona. Ég hringi í þig í dag, morgun eða eftir helgi. Vona að vöfflurnar bragðist vel. Hefði gjarnan viljað hitta þig og gúffa í mig einni eða tveimur ;-)

10:44 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hún á afmæl´í dag, hún á afmæli hún Gunnur, hún á afmæli í dag. Innilegar hamingjuóskir.....
kveðja
Helga

10:53 f.h.  
Blogger Bippi said...

Til hammó með ammó Gunnur mín;o)

12:05 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hæ elsku Gunnur mín.
Hjartans hamingjuóskir með afmælisdaginn þinn. Vona að þú njótir hans í botn og látir stjana við þig. Þú átt það sko skilið.
Bestu kveðjur
Rannveig

2:49 e.h.  
Blogger Gunnur said...

Takk elskurnar!!!

Hefði sko viljað hafa ykkur öll í vöfflum og rjóma... Einhverntímann, einhverstaðar seinna!

5:03 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Til hamingju með afmælið í gær elsku tanta mín!! :o)
Mucho knús til þín og vonandi hafðir þú það gott á afmælisdaginn.
Sigrún M.

2:11 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Til lukku með gærdaginn. Hefðum alveg verið til í vöfflur!!

11:44 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home