sunnudagur, apríl 09, 2006

Bingó

Haldiði að maður hafi ekki bara skellt sér í Bingó í gær!! Páskabingó Íslendingafélagsins og nokkur lambalæri í boði, sem kitlaði aðeins keppnisskapið... Ekki komum við Ylfa heim með páskasteikina en litla trippið mitt nældi sér í eitt Nóa-Síríus páskaegg nr 2! Þið hefðuð átt að sjá sældarsvipinn á litla sykurpúðanum þegar hún komst að því að ekki nóg með að eggið væri úr súkkulaði, heldur væri það líka fyllt með nammi! Mín alltaf að græða hehe

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Vá ekkert smá flott hjá minni.

Já maður er alltaf að græða í þessu lífi og verður að muna að halda áfram að gleðjast yfir litlu uppákomunum, eins og páskaeggi fullu af nammi nr.2.

knús í kotið
Aldís

10:14 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Amma hlýtur að mæta með páskasteikina og einhvern glaðning ef ég þekki hana rétt!!

En kæru hjón til hamingju með bómullarbrúðkaupsafmælið ( vá ekkert smá langt) en njótið dagsins og gerið eitthvað huggó.

Bestu kveðjur af skaganum

12:51 e.h.  
Blogger Gunnur said...

takk fyrir það Jóhanna! Eiginmaðurinn nýtur dagsins í próflestri á bókasafninu :-) En elduðum okkur önd í gær, smá fyrirfram glaðningur. Bið að heilsa!

2:33 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home