miðvikudagur, maí 03, 2006

...like a virgin...

Jáhh haldiði að stelpan hafi ekki bara reddað sér miðum á Madonnu tónleika!!! Og það upp á eigins timbur :-) Var mætt til Horsens fyrir allar aldir á laugardagsmorgni, eftir að hafa beðið aðeins eftir hjólhýsapensionistunum Karen og Helenu (híhí). Við sáum bara mest eftir því að hafa ekki tekið djammið í Horsens á föstudagskvöldinu og verið mættar fyrstar í röðina :-) Annars var þetta svo vel skipulagt hjá dönunum að við þurftum bara alls ekki að standa lengi í röðinni. Þannig að ég mæti á dansgólfið hjá Madonnu 24. ágúst mmmuuuhhahahahahahaa

7 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Þið eigið eftir að verða flottar saman, þú og Madonna. Þetta verður örugglega algjört ævintýri. Bara fara að hlakka til!!
Kveðja
Helga

2:31 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Jó, HVAR er popp drottningin með tónleika??
Þú sýnir henni nokkra dans takta frá Hemme flokknum víðfræga ;o)

Sigrún tanta

3:17 e.h.  
Blogger Gudbjorg said...

Vúhú, góða skemmtun. Sif gæti örugglega lánað þér gamla búninga ef þú vildir vera í fíling. En talandi um gamalt. Er að taka búlskúrinn í gegn og þar er að finna nokkur gömul B&B, viljið þið nokkur inn á WC-ið? ;-)

6:14 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hei, frábært það verður pottþétt gaman hjá þér og Madonnu:-) Bið að heilsa

Kveðja Svava

7:12 e.h.  
Blogger Gunnur said...

Ég skil nú ekkert í þér Gugga að vera ekki með B&B í stöðugri notkun á salerninu, bara búin að henda góssinu út í skúr huh :ö) Annars var ég einmitt að velta því fyrir mér hvar ég gæti fengið bleikan leikfimisbol fyrir tónleikana, en hvernig læt ég! Hjálpum þeim og líka Gunni að meika það með Madonnu hehehhe

8:41 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ó nei, ég trúi þessu ekki...... Sjitt hvað ég væri til í að koma með þér, fan nr. 1 á mínum yngri árum - ég ætti sko að vera þarna.
En ætli ég verði bara ekki að stóla á þig í þetta skiptið, þú tekur þetta bara út fyrir mig. OMG!!
Og já, hvor ykkar er með öll typpapóstkortinn, ég hélt við ætluðum að skiptast á að vera með þau???

1:37 e.h.  
Blogger Gunnur said...

nákvæmlega! Gugga lumar þú á þessu öllu saman í skúrnum... og gulldólgurinn sem fékk skírn og alles heheheheheh

8:06 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home