Dagur er að kveldi kominn. Enn ein helgin liðin. Enn ein vikan liðin.
Eru það ellimerki að finnast tíminn líða hraðar í dag en í gær?
Vorið er komið í Lystrup og grundirnar gróa. Freknurnar spretta fram á kinnarnar og brosið nær út að eyrum :-) Þó það hafi verið smá erfitt að þurrka tárin úr augunum og kyngja kökknum í hálsinum eftir að við vínkuðum ömmu Margréti bless á lestarstöðinni. Ástarþakkir fyrir okkur elsku amma, þetta var bara dásamlegt!
En við huggum okkur við það að amma Unna er að koma eftir helgina :-) :-) og svo styttist jú í Spanjóla...
Er búin að meika Detox dag ásamt mínum ektamanni! Erfitt en athyglisvert.
Það er því Fríða Fölner sem kveður frá B4 í bili ;-)

6 Comments:
Já hvað er það Fríða mín? Er þetta partur í því að undirbúa sig fyrir Spanjólana eða???
Úff get trúað því að það hafi verið erfitt að kveðja ömmu Margréti. Ömmuknús myndin er BARA sæt :o)
Já og endilega fræddu okkur um Detoxið??
Sigrún M
Það er nú gaman að fá heimsókn en það er satt sem Hjálmur segir að kannski vorið bæti aðeins í bakkann því það er nú búið að vera einstaklega harður vetur. Nú eru greinilega gestirnir farnir að tíast til ykkar sem er bara yndislegt.
Bestu kveðjur til allra
Detox??? Er þetta eitthvað dónó eða?? ;)
Detox??? er það eitthvað sem við Hallur ættum að gera líka fyrir La marina er það partur af prógrmminu??!!;)
Detoxið er þvi miður ekkert dónó:-) Átti að vera svona helvíti fín leið til að hreinsa líkamann og öðlast meiri orku og vellíðan. Ávextir og salat á seðlinum i einn dag! Gekk ekki betur en svo að ég vaknaði nóttina á eftir hreinlega að deyja úr hungri og var svo eins og argasti villimaður við morgunverðarborðið daginn eftir! hehe
Skrifa ummæli
<< Home