nei hvur fjárinn...
vikan bara líður án þess að ég fái orði inn komið! Helga, Pálmi og Eiríkur voru ekki svo vitlaus þarna um árið með gervihnattaöldina! Ég verð orðin jafngömul pabba eftir nokkrar vikur með þessu áframhaldi :-)
Lífið mallar áfram sinn vanagang. Sólin tók sér pásu og við hríslumst um af kulda í tæplega tuttugu gráðum. Hún lætur nú vonandi sjá sig bráðum blessunin og gefur okkur smá yl í kroppinn ;)
Við þeytipíkuðumst bæinn þveran og endilangan í dag á milli opinberra stofnana. Það þurfti meðal annars að fara á skattinn út í Viby, til þess eins að komast að því að skatturinn hefur flutt starfsemi sína í Ráðhúsið! Við í miðbæinn í ráðhúsið, "hmm þetta er skrýtið" sagði konan á skattinum í ráðhúsinu "þið verðið að tala við sérfræðing sem staðsettur er á Grøndalsvej". Og hvar er Grøndalsvej, jú nema út í Viby!!!
Gudskelov fyrir bíldrusluna okkar góðu ;)

2 Comments:
ekta danskt, frem og tilbage..... gott að bílinn stendur sig enda asskoti flott hljóð í honum :)
kv. húsmóðirinn í þarnæsta
Eins og maður hafi ekki neitt annað að gera, híhí. En skatturinn lætur nú jafnan hafa fyrir sér enda stundum hægt að næla sér í nokkra aura á þeim bænum sé maður nógu sniðugur í tölunum. Vonandi verðið þið heppin :-)
Skrifa ummæli
<< Home