Ísland
Brrrr ég er frosin á tánum... :-)
Mamma fullyrti það að ég þyrfti sko engar úlpur, hvað þá kuldagalla, með til Íslands! En hvað haldiði, það er rok og kuldi hehe sem gerist að sjálfsögðu sárasjaldan á Skaganum ;)
Það er alltaf jafn yndislegt að koma heim og fá að knúsa vini og vandamenn. Ylfa er í essinu sínu og nýtur þess í botn að snúa ömmum og öfum um fingur sér. Ég heyri í henni núna að spila á hljómborð og syngja fyrir ömmu sína, þær eru þolinmæðiskonur þessar ömmur ;) Litla skriðdýrið mitt brosir bara blítt og þykist vera feiminn öðru hvoru, svo sem ekki furða þar sem honum er endalaust þvælt á milli nýrra staða að hitta nýtt fólk. En við höfum það súper gott og troðum okkur út af skyri og flatbrauði!
Ég treysti á ykkur þarna heima að hugsa vel um hann Mumma minn! Við söknum hans hrikalega, sérstaklega Ylfa sem hefur fellt nokkur tár af söknuði. Ég held að hún hafi áhyggjur af honum þarna einum. Fyrir ykkur sem ekki vitið, þá er mjög auðvelt að gleðja hann með smá matarbita hahahahaha!

7 Comments:
Það gengur víst ekki að vera berfættur í sandölum á Skaganum!
Það verður kínverskur hjá okkur á morgun (sko matur), honum Mumma þykir það örugglega ekki slæmt;o)
Knús frá Bøgehaven 17
Þið eruð náttúrulega bara eðal nágrannar Heiðrún mín! Bið að heilsa í kínverskan á morgun og takk fyrir að hugsa svona vel um strákinn ;)
Góða skemmtun á Íslandi, verst með þennan kulda. Það er einmitt það sem við eigum eftir að sakna hvað mest héðan frá Þýskalandi, "góða veðrið". Hafið það notalegt með fjölskyldu og vinum, bestu kveðjur frá Coesfeld
Hjartanlega til hamingju með litla snúllann!! Ég hlakka til að sjá hann labba þegar að þið komið heim;o)
Hann hefur bara þurft íslenskt fjallaloft og stóran skamt af ömmum til þess að koma honum af stað;o)
Til hamingju með að prinsinn sé farinn að ganga, Gunni var að skoða myndband af honum og var hann ekkert smá flottur. Hlakka til að sjá hann labba þegar þið komið eftir nokkra daga.
Biðjum að heilsa öllum.
Kær kveðja úr Bögehaven 8
Jæja Gunnur koma svo, smá bloggidyblogg...
Aldís
Sammála Aldísi koma svo, eða er svona mikið að gera í pössunarpíu starfinu og erfitt að vera með 3 börn í heimili;-)
Skrifa ummæli
<< Home