75
Gámafjélagsdruslurnar eru væntanlegar í kvöld! Eða öllu heldur Félag eldri borgara í Gámafjélaginu, það er nefnilega þannig að við í Gámafjélaginu höfum skyndilega elst um nokkur ár. Höfum öll náð 75 ára aldri og ætlum að skemmta okkur samkvæmt því í kvöld :-) Aldrei að vita nema Bingóið verði dregið fram...
Matseðillinn er heldur ekki af verri endanum; steikt slátur með sykri í forrétt og sigin ýsa með tólg og glænýjum kartöflum í aðalrétt. Hvort það leynist ekki smá sletta af ábresti í geymslunni...
Ég hlakka mikið til að sjá nýja eldri borgara ´lúkkið´ á öllum í kvöld og ekki síður hlakka ég til að skeggið á manninum mínum fái að fjúka eftir öll herlegheitin!
Go´ weekend

5 Comments:
Góða skemmtun!! Væri gaman að fá svo að sjá myndir af eldri borgurum
Þið verðið nú líka að taka "Undir bláhimni" það er nú algjört möst.....svo er líka spurning um að taka smá línudans...hann er mjög vinsæll hjá eldri borgurum...jú og ekki má gleyma stafagöngunni;)
Góða skemmtun í kvöld;o)
hæ hæ, sendið okkur myndir af öllum eldri borgurunum. Ég gæti ath með skrá ykkur í FEBAN ha ha hí.Bestu kveðjur úr rokinu að norðan. Góða skemmtun gamla fólk. Knus og kossar, amma M.
Góða skemmtun, var það ekki súrt í den?
bk
Helga
Hvernig er þetta með þessar Gámafélagsdruslur, er partýið ekki að verða búið?
Kveðja úr kuldanum
Aldís
Skrifa ummæli
<< Home