brrrrr......
Fékk bæði kuldahroll og gæsahúð þegar ég sá forsíðufrétt á mbl.is áðan. Allt á kafi í snjó á Akureyri og mágur minn væntanlega á leið í fjallið með brettið á bakinu :-) Er þetta nokkuð Fönnin okkar á leiðinni í skólann í kuldagalla með húfu, trefil og vettlinga? Já nei ég flyt ekki heim fyrr en ég get tekið veðrið með mér!
Hér er nú samt komið haust, sólin skín og haustlitirnir skarta sínu fegursta. Eldrauð, appelsínugul og gul tré hægri vinstri ! Nú vantar bara að Garðyrkjufélagskonan á Skaganum komi í skoðunarferð :-)
Hér er nú samt komið haust, sólin skín og haustlitirnir skarta sínu fegursta. Eldrauð, appelsínugul og gul tré hægri vinstri ! Nú vantar bara að Garðyrkjufélagskonan á Skaganum komi í skoðunarferð :-)

10 Comments:
Já væri sko alveg til í að koma og skoða tré og runna í þínu nágreni, enda haustið besti tíminn til þess. En hér er ekkert haust lengur heldur vetur og það ískalt.
knús og kossar
Aldís
Hér er búið að rífa fram snjógalla og allar tilheyrandi græjur ;) Það mældist 16 cm jafnfallinn hér í morgun og það er ískygglega jólalegt um að lítast. En eins og alltaf á Akureyri er logn og fallegt veður þannig að ekki er hægt að kvarta. Stelpurnar eru amk mjög sáttar.
Var nú samt að nefna það við Hall hvort ekki væri ráð að líta á námsframboð í University of Florida fremur en norður USA. Held ég helli mér í að skoða suðrænar og seiðandi slóðir, þegar á verð búin að skíta á mig í helv. GRE prófinu sem ég er að læra fyrir :(
Corpus Christi hljómar vel þegar farið er að snjóa í október!
Við gerum svo snjókall fyrir Ylfu á næstu dögum.
Hvítar kveðjur,
Andrea
....við hjónin vorum einmitt að tala um það í dag að við þyrftum líklegast að slá einu sinni enn fyrir veturinn..;o)
Dagurinn í dag er búinn að vera yndilega fallegur...Danmörk er alveg ótrúlega falleg í haustlitunum.
....við hjónin vorum einmitt að tala um það í dag að við þyrftum líklegast að slá einu sinni enn fyrir veturinn..;o)
Dagurinn í dag er búinn að vera yndilega fallegur...Danmörk er alveg ótrúlega falleg í haustlitunum.
híhí held að konan á efri Skaganum hafi nú ekki ætlað að móðga neinn með því að kalla umhverfi mitt ná-greni :-) Enda er mitt nánasta nágrenni einstaklega fallegt!
Nákvæmlega það sem mér finnst, hélt að hún hefði séð það, annars var þetta kannski bara prentvilla hjá henni!!
Fórum að hlusta á fiðlusveitina í gær, algjör snilld!!! alveg kjaftfullt í stóra salnum í Borgarleikhúsinu og frábærar móttökur.
Kv.
Má ég óska ykkur innilega til hamingju með fréttir af fjölgun innan dönsku krúnunnar. ;) Þvílík lukka, mikið er ég glöð að Friðrik stendur sig með henni Mary sinni, þau er helv.. dugleg. Gott að hafa góðar barnfóstrur svo maður geti búið til fleiri börn, þrátt fyrir að vera nýbúinn.
Kveðjur frá fyrrum nýlendu krúnunnar dönsku,
Andrea
NÁGRENNI
svo það sé nú rétt og allir rólegir!!!
Kveðjur úr nágreninu héðan af Neðri-Skaganum. hihihi
Aldís
Mér finnst nú greni fallegt, híhí. En hvernig væri nú að setja inn myndir af haustinu í DK. Væri alveg til í að sjá.
Kveðjur úr fallegu veðri í sveitinni í Vorsabæ
Ástralarnir eru einmitt alsælir með sinn þátt í fjölgun innan dönsku krúnunnar, ekki um annað talað hér.
En mikið hlýtur fólkið manns að vera ótrúlega skemmtilegt...hugsa sér að maður ætli að flytja aftur í þetta veðurfar!
Skrifa ummæli
<< Home