Litli lasarus
Það eru ekki allir á þessu heimili svo heppnir að fá ´bara´ sólarhringsælupest! Minnsti kroppurinn er búinn að vera ælandi og með drullu í heila viku, með tilheyrandi lystarleysi og slappleika. Í annað skiptið í vikunni fórum við með drenginn til heimilislæknis í gær og var okkur gert að snarast með litla lasarus á Skejby sygehus til frekari rannsókna! Eitthvað voru menn og konur þar að velta því fyrir sér hvort leggja þyrfti barnið inn og gefa honum næringu í æð. Því skiljanlega var barnið orðið frekar máttvana og sljótt eftir vikuna. Búinn að tapa rúmu kílói í þyngd og ekki voru nú keppirnir fyrir til að taka af. En eftir daginn á sygehusinu vildu læknarnir senda hann heim með opna innlögn og sjá hvernig helgin myndi þróast. Ýmsar ráðleggingar fengum við foreldrarnir með í pokahorninu, sem meðal annars fólu í sér að salta krakkann sem mest. Það voru því keyptar saltstangir, kartöfluflögur og Tuc kex, en ekki sýnir lasarus þessu mikinn áhuga. Hann vill kúra og fæst til að sötra eplasafa eða saftevand eftir hentugleik.
EN ég er ekki frá því að strákurinn sé að braggast, enda hörkutól og þrjóskari en andsk... Hann ætlar sér ekki inn á sjúkrahús. Heill banani og heil brauðsneið hefur fengið að hverfa oní hann það sem af er degi og þykir bara nokkuð gott.
Ég ætla því að leyfa mér að fullyrða að við séum á batavegi :-)
EN ég er ekki frá því að strákurinn sé að braggast, enda hörkutól og þrjóskari en andsk... Hann ætlar sér ekki inn á sjúkrahús. Heill banani og heil brauðsneið hefur fengið að hverfa oní hann það sem af er degi og þykir bara nokkuð gott.
Ég ætla því að leyfa mér að fullyrða að við séum á batavegi :-)

7 Comments:
Aumingja litli kúturinn. Ég sendi honum baráttukveðjur yfir hafið og vona að hann sofi þetta úr sér í nótt. Hafiði prófað frostpinna?
Vona að þetta komi allt saman hugsa til ykkar og gagni ykkur vel. Það er svo erfitt að horfa á svona litla kroppa svo veika. Var á dvalarheimilinu á Hellu í vikunni og þar hefur svona pest verið að ganga smá ráð þaðan en Gatorade var að virka og hressi fólk við. Baráttukveðjur
Batakveðjur til Nóa litla, tek undir þetta með gatorade, ansi gott, mæli ekki með kók en hann er greinilega allur að koma til. Salt er mikilvægt en hér er líka hægt að fá svona mineralblöndu (duft) fyrir krakka sem hafa verið með niðurgang og ælupest. Það er líka allt betra en að fá næringu í æð, hann veit það greinilega þetta litla skinn....
Kveðja Helga
Almáttugur minn eymingja barnið. Ég smitaðist af sólahringspestinni eftir að ég las um alla æluna hjá ykkur. Var nú reyndar bara hálfur sólahringur en ég er búin að vera tvo daga að jafna mig...biði ekki í heila viku. Ég sendi því mínar fallegustu hugsanir yfir höfin.
Æ kall greyið. Vonandi fer þetta nú að koma hjá honum. bestu batnaðarkveðjur til ykkar. kveðja Svava
Takk fyrir góðar batakveðjur.
Jú Gatorate var drukkinn og ælan hennar Ylfu oftar en ekki blá :-) Samkvæmt læknisráði eigum við að gefa Nóa kók og snakk... en látum eplasafann og saftevandið duga í bili!
Vonandi hann fari nú að braggast elsku kallinn!
Við verðum nú að hafa "Nóna" með þegar að við förum að sækja jóltré með vöggustofunni á föstudaginn;o)
Skrifa ummæli
<< Home