fimmtudagur, nóvember 30, 2006

Sagan endalausa...

Hvar endar þetta alltsaman...
Helgin var stórfín hjá stráknum, þrátt fyrir nokkrar drullur, og opin innlögn á Skejby sygehus rann út. Sem betur fer. Þá tók við röraaðgerð, sem hafði verið frestað vegna veikinda. Gekk hún bara nokkuð vel og sáum við fram á notalegar nætur djúpt inní draumalandi. Fyrsti dagurinn í vöggustofunni í gær eftir löng veikindi endaði með því að pædagogarnir kvörtuðu yfir endalausum straumi af blóði og drullu úr báðum eyrunum á stráksa! Það var því hringt í frú eyrnalækni og jú koma með drenginn strax næsta morgun! Barnið tók þvílíku hysteríuköstin hér í gær og í nótt, grét og barðist um á hæl og hnakka. Gjörsamlega óhuggandi og greinilega sárkvalinn. Haldiði að barnið sé ekki komið á pensilin vegna eyrnabólgu, tveimur dögum eftir röraaðgerð! Ég er hreinlega búin að fá yfir mig nóg af þessu og vil að barninu mínu fari að líða vel!!!

En bót í máli er að amma Unna kom til okkar í gærkvöldi, þvílík hamingja. Við þurftum virkilega á því að halda að fá ömmuknús núna eftir og í öllu þessu veikindaveseni. Enda ætlum við að njóta þess út í ystu að hafa ömmu hjá okkur og ´hugga´okkur endalaust með henni :-)

6 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

hæ elskurnar, þetta er ekki orðið fyndið með lasarusinn endalausa. Vonandi getur amma Unna knúsað þetta úr honum. Ýmir ætlar að sofa á milli í nótt, hann er búin að vera hálf slappur. Vonandi fer þetta að lagast með stubbinn. Knus og kossar af Jaðó. amma M.

9:44 e.h.  
Blogger Christel said...

ohhh það er svo gott að fá ömmuknús, njótið þess!!

11:09 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég sem hélt að eyrnabólga væri bara til á Íslandi, reyndar er Nói Íslendingur!!!!!
Vona að frænda batni sem fyrst þannig að honum líði betur og foreldrarnir fái að hvíla sig, ekki veitir af. Stórt aðventuknús frá öllum í K64. Unnur

11:25 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Shiturinn titturinn!!
Þetta er nú löngu hætt að vera fyndið, prófið að setja hvítlauk í eyruna á honum kvölds og morgna.

Helv.... ælupestinn náði semsagt yfir hafið og ég var að hreinsa upp æla í alla nótt og fram á daginn. Dögun fékk ælupest einmitt þegar pabbinn var að vinna í Reykjavík. Móður sinni til mikillar ánægju, þar sem ég er auðvitað einstaklega hrifinn af hvers konar van-svefni :=)
En stúlkan er að hressast og móðirin stefnir á að fara snemma í háttinn!

Kossar og knús af Ásveginum,
Andrea móða

9:11 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Litli labbakúturinn.

Maður er bara orðlaus við svona fréttir.

Sendum ykkur knús og koss af Skólabrautinni.

;)

(Hér er verið að skreyta piparkökur, reyna að setja upp jólaljós og gera fínt fyrir jólin. Í bland við prófstress og verkefnavinnu dauðans!! Það tekur enginn jólatilstandið frá börnunum mínum. Maður er náttúrulega bilaður....)

1:10 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

sendum ykkur góða srauma, góða skemmtun með ömmu :-)

kv. Helga

4:03 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home