þriðjudagur, janúar 09, 2007

Gleðilegt ár 2007

Ylfa, Sóley og Salka í góðum áramóta gír


Það væsti aldeilis ekki um okkur hérna í Danmörku um jól og áramót. Umvafin dásamlegum vinum frá Íslandi og að sjálfsögðu ömmu M. og afa. Ástarþakkir fyrir allt þið öll!

Svo nú er það að koma sér í gírinn aftur, skólar, leikskóli og vöggustofa! Ég verð nú að viðurkenna að rútínan er ágæt eftir svona gott frí. Ekki það að ég nenni fyrir mig litla líf að byrja að læra... En við tökum kát og bjartsýn á móti nýju ári. Af einhverjum ástæðum grunar mig að við eigum eftir að hafa nóg að gera, sérstaklega svona með vorinu. Enda ætlum við að vera grand á því og gefa honum Ingþóri vini okkar merkilega afmælisgjöf í maí:-)
Ef guð lofar, eins og hún Magga mín segir!

8 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Hæ hæ og takk fyri meitiháttar tíma hjá ykkur, þetta eru flottar stelpur með stjörnuljósin sín, var mín eitthvað hugaðri núna heldur en fyrri áramót?
Kv afi HGH

2:32 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Gleðilegt árið kæra fjölskylda, það er yndislegt að þið höfðuð það gott í Danmörkinni þessi jól og áramót. Heima er best? Gangi ykkur allt í haginn á árinu og farið vel með ykkur. Bestu kveðjur úr vorinu, Helga

8:23 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hí hí hí, ég veit hvað Ingþór fær í afmælisgjöf!! Mjög svo grand. Það tístir í mér að vita það...

1:07 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Gleðilegt ár! Já ekki slæmur dagur sem þið völduð fyrir svona fína gjöf;-) Ingþór er frekar ánægður með ykkur núna.
Það er aldeilis að þið systkinin eruð samtaka;) Innilega til lukku með þetta allt saman.

Bestu kveðjur af Vallholtinu

2:02 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Já satt er það, þetta er mjög svo grand og ég er frekar ánægður! Spurning um að maður verði ekki bara viðstaddur.

1:21 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég sé að það er búið að ákveða að ég verð ekki þess heiðurs aðnjótandi að fá svona grand afmælisgjöf frá þér í ár. En það er allt í lagi ég get alveg beðið í tvö ár í viðbót:) :) :)

3:08 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Já grand eruð þið og höfðingjar heim að sækja. Hér átti allt að vera komið í gamla góða gírinn :) En það sprakk heitavatnsrör á Skólabrautinni strax á 2. degi og við erum nú gestir enn og aftur. Já búið að rífa allt parket, suma veggi, hurðakarma og já bara nefndu það. Verðum á 'Asabrautinni allavega viku í viðbót.

Söknum ykkar og finnst asnalegt að við séum ekki að kíkja í kaffi til ykkar á morgun!!

Kveðja af Ásabrautinni

10:21 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hellúú,

ég vildi bara benda á í þessari umræðu að Andrea er alþjóðlegt og fallegt nafn!!! og Andreas líka!!!
Annars bara farið þið vel með ykkur elskurnar og við sjáumst með vorinu.

Knús frá Akureyri,
Andrea

11:06 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home