jólaspenna
Skuggalegt hvað tíminn líður hratt í desember!
Það er sem betur fer farið að síga á seinni hlutann í verkefna og prófvinnu. Þá er loksins hægt að einbeita sér að jólunum og senda kannski eitt eða tvö jólakort :-)
Ylfa er hreinlega að fara á límingunum í jólaspenningi, nú styttist í ömmu og afa og jólasveininn farinn að gægjast á gluggann á hverju kvöldi. Það kostar jú smá panik og stress og mikið pælt í því hvernig hann færi nú að þessu öllu saman. Að vita hvort hún er stelpa eða strákur, komast með pakkann inn um gluggann og allt það. En henni finnst öruggast að sofna alltaf með bakið að glugganum og með stærstan bangsann sinn yfir andlitinu. Það er aldrei of varlega farið hjá henni Ylfu minni :-)
Litla dýrið frekjast hérna áfram og er lítið að stressa sig á jólaspenningi. Hann hitti jólasveininn á julfest i vuggestuen, en fannst hann bara alls ekki merkilegur. Pokinn sem hann gaf honum var miklu meira spennandi, enda innihélt hann eitthvað ætilegt. Hvaðan barnið hefur þessa matarlyst... það er spurning!
Njótið aðventunnar!

5 Comments:
Æ hvað maður saknar þess að geta ekki hitt ykkur á aðventunni. En við vorum ótrúlega nálægt ykkur um helgina ;-) Ég mannaði mig í að gera heimasíðu fyrir stelpurnar á Barnalandi, kíktu endilega á myndir af þeim. Knús til allra, Unnur
Ég tek undir með Unni það er leiðinlegt að geta ekki hitt ykkur á aðventunni, eiginlega bara hrikalega leiðinlegt ;0(
En hér er svipuð stemmning með sveinka, draga vel fyrir gluggann, sofna með ljós og fara saman á morgnana til að athuga hvað er í skónum ........ og maður er sjö að verða átta hahhaha Veit ekki hvað þetta er með hjartastærðina hjá frænkunum fræknu ;) Dögun tekur þessu passlega hátíðlega, finnst reyndar ekki leiðinlegt að fá gjöf á hverjum morgni.
Góða skemmtun á aðventunni.
Kossar og knús,
Andrea, var að klára prófin.
Úff...ég er með hálfgert samviskubit yfir því að hafa verið að hræða barnið með jólasveinasögum...:o/
Frænkurnar hafa þennan gunguskap allavega ekki frá mömmum sínum, sem eru náttúrulega þykkir töffarar :-)
Já Heiðrún þú ert stórhættuleg, við vorum búin að fara í gegnum langar umræður um að sveinki kæmi aldrei inn til okkar. Svo segir þú henni sögur af ískápsþjófum og ég veit ekki hvað. Ég þakka bara fyrir að þú slepptir Grýlu úr sögunni hehehehehehehe
ÆÆ ekki gott að vera hræddur við að sveinki komi inn til að setja í skóinn. Þetta er frekar erfitt málefni. Kannski verður það mikill léttir að komast svo að sannleikanum?
Rosalega voruð þið dugleg í laufabrauðinu, flottar myndir hjá Bippa.
Sveinkakveðja
Helga
Skrifa ummæli
<< Home