mánudagur, janúar 29, 2007

Ömmusakn

´mamma, ef ég loka augunum, þá hugsa ég bara um ömmu og þá fer ég að gráta´
Já það er ekki eintóm sæla að búa svona í útlöndum og þurfa að kveðja ömmurnar eftir stutta heimsókn á Íslandi. Fyrstu kvöldin eru alltaf erfið og svo eru mamma og pabbi með einhverjar óþarfa reglur á hlutunum sem ömmurnar eru ekkert að flækja sig í :-) En svona er lífið og rútínan verður komin á liðið áður en við vitum af.
Ég er að minnsta kosti himinlifandi að vera búin að fá feðginin heim aftur og finnst lífið bara ljómandi fínt!

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Já þetta ömmusakn kemur upp þrátt fyrir að maður búi ekki í útlandinu, Fanney er ömmusjúk og verður ómöguleg ef það líður sá dagur að hún hitti ekki ömmu sína. Hluti af þessu er einmitt að reglurnar eru rýmri hjá þeim, best finnst henni þegar amma sækir BARA hana á leikskólann.

11:24 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hæ, það yljar ótrúlega að hún sakni okkar svona. Kanski vantar ömmu til að lesa Fíusólina skemmtilegu.Það er ósköp tómlegt í kotinu núna, þegar tuðran og skruddan okkar eru farnar. Saaaaaaknaðarkveðja til allra. Amma M.

10:48 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Þið þarna DANASLEIKJUR!!!

Hér eru menn og konur vægast sagt svekkt eftir tapið áðan og erum ekki viss með danmerkurferð í vor og spurningin hvort við gætum hisst í Svíþjóð !!!!
Nei annars vitum hvar hjartað ykkar slær og ætlum að vona að þessum sigri hafi ekki verið fagnað vel og lengi þarna í bögehaven.

Vinnum dani næst!!!

11:06 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home