fimmtudagur, mars 22, 2007

enn og aftur helgi

Er ekki kominn tími á nokkrar línur héðan úr B4!
Málið er að mér finnst bara alltaf vera helgi. Síðasta helgi fauk ljúflega og nú allt í einu kominn fimmtudagur aftur, spurning um klassísk ellimerki...

Við hjónin gerðum góða ferð í Ikea í gær og fjárfestum í rúmi handa drengnum. Nú þýðir ekkert að vera smábarn lengur í rimlarúmi. Fyrsta nóttin í nýja rúminu gekk framar björtustu vonum, ´Nóni´rumskaði bara einu sinni sem þykir ekki til tíðinda á hans mælikvarða. Spennandi að vita hvert framhaldið verður.
Ylfa veltir því fyrir sér í rólegheitunum hvort tími sé kominn til að taka hjálpardekkin af stóra hjólinu. Það er jú aldrei of varlega farið hjá henni Ylfu minni, en það versta er að vinkonurnar eru ekki með hjálpardekk. Svo er hún búin að panta ferð í bambagarðinn um helgina og kveikja svo bál og grilla snobrød og skumfiduser á eftir! Aldrei að vita nema maður grafi upp skátasöngvana og haldi bálpartý úti í garði :-)

7 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Þau eru yndisleg þessi börn, spennandi að fylgjast með hvort hann fer ekki að lauma sér uppí fyrr á nóttinni, og hún Ylfa mín veit að það er sko aldrei of varlega farið, maður veit aldrei hvað getur gerst!!
Kv. afi

1:32 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Bálið brennur er alltaf klassískt.
Mæli með því!!!

6:48 e.h.  
Blogger Gunnur said...

Ég hef heldur aldrei verið skáti og aldrei kunnað að syngja... :-)

9:32 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Má ég mæla með að þið syngjið Ég á græna flösku, eftir Ástmeyjar Hamlets. Gunnur þú kannt það!

11:24 f.h.  
Blogger Bippi said...

Græna flaskan hljómar vel!!!

En ég er svo sammála tér vardandi tímann hann gjörsamlega flýgur áfram. Lífid hlýtur bara ad vera svona gott og skemmtilegt i Bøgehaven;o)

11:40 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Bál og skátar segirru - pant mæta með gítarinn og glamra Þýtur í laufi. Gítargripin auðveld og takturinn rólegur ;o) (mjög gott fyrir byrjendur)

Sigrún tanta

2:18 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hljómar allt vel... góda skemmtun,
Helga

8:45 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home