föstudagur, apríl 13, 2007

madpakker

Ef það er eitthvað sem mögulega gæti fengið gráu hárin til að spretta fram, eru það helv... nestispakkarnir í leikskólann. Fjóra madpakke þurfum við að smyrja á hverjum morgni, tvo fyrir hvert barn. Sparnaður í leikskólageiranum fól þessi skemmtilegheit í sér, því flestir leikskólar og vöggustofur völdu að reka frekar matráðinn en starfsmenn af deildum. Við erum ekki að tala um að sletta oní boxið einni samloku með skinku og osti, nei daninn vill hafa rúgbrauð og helst á boxið að innihalda fínt smørrebrødshlaðborð með góðri blöndu af grænmeti og ávöxtum. Ekki er heldur í boði að senda afganga sem þarf að hita upp, því slíkan munað getum við ekki farið fram á. Jógúrt er helst á bannlista, það inniheldur svo mikinn sykur. En brauð með chokoladepålæg er aftur á móti allt í lagi í hófi! Það þýðir því lítið að vakna á mánudagsmorgni og eiga hvorki rúgbrauð né lifrarkæfu ;)

Við uppgötvuðum það í páskahúsinu að dóttirin er nánast hætt að tala íslensku! Þrátt fyrir að vera í rúma viku í fríi úr leikskólanum kemur bara danska og íslensku orðin finnast hreinlega ekki. Stundum vill hún virkilega reyna, en svo gleymir hún sér og þá kemur bara danska!

´Mor, jeg kan ikke få pølsen ud'!!! Hvað haldiði að hún hafi verið að gera???

10 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Hmm. Meðan við örgumst yfir hollustuleysi í skólaeldhúsum!!! Það er erfitt að vera til stundum, maður finnur sér alltaf eitthvað til að argast yfir. Arrrrg

Hefur Gummi engan áhuga á smörrebrauðsgerð? Það er matreiðsla!!

Knús í kotið
Aldís

10:12 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Það margt búmannsbölið!! En þetta með íslenskuna, er ekki bara málið að leyfa þessari elsku bara að koma svona tvær vikur til ömmu og afa á Íslandi og liðka íslenskuna, nú eru Flugleiðir að bjóða þennan fína afslátt af barna fargjöldum!!
Hilsen
Morfar

11:25 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hún var greinilega að reyna að opna pulsupakka.

1:34 e.h.  
Blogger Gunnur said...

híhí nei Svana hún var ekki að opna pulsupakka... hehehe

Afi, vorum við ekki búin að ræða þetta ;) Við eigum von á svo mörgum fínum gestum í sumar sem taka íslenskuna hennar í gegn! :-)

Gumma finnst rúgbrauð með makríl, eða kæfu og rauðbeðum ekki matreiðsla! hehe

1:49 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég átta mig á því núna þvílík skynsemdarákvörðun það er að rífa stúlkurnar mínar til enskumælandi lands, það tala allir ensku í þessum heimi. Meira að segja ömmur og afar ef allt þrýtur! Var ekki búin að taka þennan mikilvæga vinkil inn í allt hitt sem búið er að huga að. En meðfædd skynsemi mín og hugvit lætur ekki að sér hæða ;-) Það verður gaman í fjölskylduboðum framtíðarinnar með börnin ómælandi á íslenska tungu, mæli með að linguaphone verði jólagjöfin í ár fyrir ömmu og afa á Jaðó!!

En það er best að við tölum dönsku á sunnudögum þangað til við komum í sumar svo við getum haldið uppi samræðum við blessað barnið.

1:58 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Það er ekki auðvelt að kunna mörg tungumál, en ég mæli eindregið með heimsókn til Íslands. Það er mjög góð fylgdarþjónusta sem er hjá Flugleiðum, engar áhyggjur að hafa af því. Nínu fannst bara sport að flugfreyjurnar væri alltaf að kíkja á sig. Hún fór fyrst þegar hún var nýorðin 5 ára.

Þetta smurstand er nú alveg merkilegt, það er nú samt gott að það sé verið að fylgjast með því hvað börnin mæta með svo það endi ekki í sjoppufæði!

En daman hefur verið í lúdó og ekki náð peði út, alveg augljóst! Ég er nú alveg dönskusérfræðingur fyrir þá sem ekki vita.

Kveðja í Bögehaven
Helga í Jörundarholtinu

2:45 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Sammála með madpakkerne. Ég er strax orðin leið á þessu en samt eiginlega bara nýflutt! Ég væri sko alveg til í að borga fyrir tilbúinn mat handa mínum börnum.

Ég er nú nokkuð viss um að fröken Ylfa hafi verið á postulíninu þegar að þetta kom upp;o)

Heiðrún nr.17

5:08 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Íslenskir skólar eru til fyrirmyndar. Börn fá heitan mat, það þarf ekkert að skammast sín fyrir að hafa ristaða samloku í kvöldmat. Hér í Ástralíu þarf líka að smyrja nesti nema maður vilji bjóða börnunum uppá mat úr skólasjoppunni sem er opin 3 daga í viku. Þið ættuð að sjá matseðilinn þar. Pizzur, hamborgarar, ís, snakk, allt sem hugurinn girnist!!! Svo velta þeir sér uppúr því að nú eigi að gera matseðilinn heilsusamlegan og skella ávaxtasalati sem einn rétt í boði. Hver vill svoleiðis þegar maður getur fengið allt hitt???

Koss og knús frá heimavinnandi húsfrúnni sem hlakkar til að hætta að smyrja

4:30 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Það er ýmist of eða van... Hér eru börnin með súkkulaðikex og sleikjó í nesti.

9:17 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Bíddu nú við.....mundi enginn eftir afmælinu hans Gumma!!?

Best að ég óski kallinum til hamingju með daginn...og takk fyrir okkur...engar smá kræsingar í afmælinu þínu;o)

Heiðrún og co.

1:04 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home