sunnudagur, október 28, 2007

tannleysi

6 ára stelpan er loksins búin að missa fyrstu tönnina!!!
Það var því mikið fagnað hér á föstudagskvöldið þegar hún kom hlaupandi heim með tönn í lófanum, stoltari en allt stolt :)
Loksins, segi ég, vegna þess að þessi tannamissir var verulega farinn að valda stelpunni miklu hugarangri. Hún var búin að vera með ímyndaða lausa tönn í margar vikur og hafði af því stórar áhyggjur að hún væri síðust í bekknum að missa tönn :)

5 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Til lukku með tannlausu stelpuna, nú fara þær hver að hrynja á eftir annarri hjá henni :o)
Mikið er ég ánægð fyrir Ylfu hönd !!

Hilsen,
Sigrún tanta

9:05 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Húrra húrra fyrir Ylfu minni, varð lendingin á Kastrup nokkuð hörð, ha ha. Sendið myndir af tannlausu stúlkunni. Ástarkveðja ammma M

9:16 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

TIL HAMINGJU JúHÚ

Ég er búin að missa 12 tennur en Dögun enga, hún líka bara 3 ára.

Kossar og knús frá Vancú
Fönn og Dögun

4:50 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Halló, halló, takk fyrir hittinginn. Mikið léttir mér að heyra að tönnin sé farin, hamingjuóskir til Ylfu frá Fanney og okkur hinum. bk, Unnur

9:55 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Halló elskurnar, hvað er að frétta? Sakna þess að heyra ekki í ykkur, er síminn ekkert á leiðinni? Eru fleiri tennur farnar? mín er nú örugglega glöð með þetta. Saknaðarkveðja amma M

9:52 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home