geðdeild B4
Talandi um Klepp...
Stundum er ég hreinlega stödd á Kleppi á mínu eigin heimili. Kvöldmatartímarnir eru gott dæmi um það. Nú í kvöld voru fjögur börn í mat, sem annað hvort skiptust á að grenja, öskra, henda hrísgrjónum yfir borðið, syngja, rífast, nú eða bara tala hvert ofan í annað! Þaulreyndir starfsmenn geðdeildar á Kleppi hefðu hreinlega látið sig hverfa ;)
Þegiðu krakki og éttu!!!
Svo þarf að bursta tennurnar í þeim börnum sem komin eru með tennur. Ætti að taka 30 sek. ekki satt! Ónei ekki alltaf, það þarf jú að skoða sig í speglinum, segja ótrúlega merkilegar sögur af afrekum dagsins, syngja lagið sem maður var að læra eða bara liggja eins og slitti í fanginu á foreldrunum og þykjast vera sofnaður!
Þegiðu krakki og opnaðu munninn!!!
Þá er það að leggjast upp í rúm og sofna. Pís of keik, eða hvað! Stundum, stundum ekki. Minnsta dýrið veltir sér fram og aftur og missir svo snudduna á gólfið, tuttugu sinnum. Miðju skronsterið uppgötvaði það einn daginn að það væri rosa spennó að koma fram trekk í trekk og vilja svo blíður kúra í sófanum. Elsta kvikindið er kyrr upp í rúmi, það vantar ekki. En stundum þarf aaaðeins að klára að lita eina mynd, raða öllum tuskudýrunum upp í rúmi, skoða 10 ljósálfablöð eða eins og nú í kvöld; skoða allar myndirnar í öllum Fíusól bókunum!
Steinhaltu kjafti krakki og farðu að sofa!!!
Hahahahahaha ég er ekkert að missa það !!!

16 Comments:
Hvað segirðu Gunnur mín á ég að koma heim?
neinei esskan mín er með þetta allt undir kontról ;) Huggaðu þig bara á bókasafninu með kaffibolla og hinum tölvunördunum :-)
Ekki er það uppbyggilegt. Fyrst veikindi og svo svona, þetta tekur nú allt enda það vill til. Gott að hugga sig við það eftir erfitt tímabil.
kveðja
Helga
Þú ert nú alltaf velkomin í húsmæðraorlof í höfuðborgina!!Þú þarft hvort sem er að koma og ná í myndina hennar Furu, sem ég kom með um helgina.Eruð þið búin að sjá sunnudagskaffisíðuna? sunnudagskaffi.blogspot.com
Kv. Harpa
Harpa ég kem um leið og ég fæ útvistarleyfi frá Kleppi hehe!
En til að koma í veg fyrir allan misskilning þá er ég meira að gera grín af okkur hérna í B4. Ég elska börnin mín út af lífinu og finnst þau fullkomin í alla staði ;)
ó ég hef misskilið þig svona rosalega, hringdi á barnaverndarnefnd og allt. Leyst bara ekkert á þetta ;-)
Annars gaman að heyra að það er líf og fjör á bænum.
þarf að fara að heyra í þér mín kæra, ASAP
Hilsen í bili
Stór saknaðarknús frá mér. Vantar svo ægilega að knúsa litla dýrið og hvað þá Nóann minn og svo stóru stelpuna...hver á að hjálpa mér að búa til piparkökurnar???
kveðja
Christel
Been there, thought that, still there ;-)
Baráttukveðjur frá Unni töntu
Ha, ha, ha, bara snilld;o)
Við vorum að koma frá Köben og hlökkum afskaplega mikið til að hitta ykkur!
Knús úr B17
Sérhver móðir gæti unnið verk nokkurra flugumferðastjóra án erfiðismuna. (Lisa Alther, bandaríkusr rithöfundur).
Gaman að þessu, það var mun rólegri vinna hjá mér á Kleppi um árið :-) Gangi þér vel Gunnur mín
Gugga
hehehehe...frábært blogg, minnir mig óneitanlega mikið á mitt líf í augnablikinu. Gaman að geta fylgst með þér hér Gunnur.
Knús
Vigdís
Hættu nú þessu he%/ væli maður!
Skelltu þér á eitt gott fyllerí, djammaðu eins og í óldís. Eyddu einum degi í þynnku dauðans og þá kemstu að því hvað þú átt það ógeðslega gott.
Maður verður hálf þunglyndur á þessum lestri. Komdu næst með skemmtilega sögu úr DK!!!
Lovjú
Hvaða djö%# kjaftur er á þér litla druslan þín ;)
Það er ekkert þunglyndislegt við það að gera grín að hversdagsleikanum í B4! Lovjú bró ;D
Hvað segirðu, eigum við að detta í það???
Við fáum okkur allavega jólaglögg við tækifæri... þá verðum við nú örugglega hýrar á brá...
Er ekki tilvalið að kallarnir baki Sörur og konurnar drekki glögg?
Knús,
Heiðrún
Ef ég væri 14 myndi ég biðjast innilega afsökunnar á þessari bráðlátu færslu minni.
svo er ekki svo:
Grjót haltu kj. . . og komdu með einhverja stuðfærslu sem gaman er að lesa!! :) Eða haltu áfram að rífa kjaft svo það verði eitthvað fútt í þessari síðu.
Bara ekki tala um stjórnmal, fæ nóg af því hjá hinni systur okkar ;)
Lov jú tú and ol of jú
Ég hef ekkert fjallað um stjórnmál á okkar heimasíðu, litli sjálfstæðistittur....... þér finnst bara erfitt að átta þig á því í hvert skipti sem ég opna munninn hvað ég hef hel%/&% rétt fyrir mér!!
Skemmtilegur vettvangur fyrir fjölskylduerjur heheh
Elska ykkur líka....
Skrifa ummæli
<< Home