sunnudagur, nóvember 18, 2007

pestarbælið B4

Ég væri að ljúga ef ég segði að helgin hafi verið ljúf og notaleg!
Á fimmtudaginn reisti Nói varla höfuð frá rekkju, nema til að æla. Um kvöldmatarleytið á föstudaginn byrjaði Ylfa að æla og ældi fram eftir nóttu. Aðfaranótt laugardags byrjaði Fura að æla og ældi og kúgaðist til skiptist. Þessi litli kroppur, allur út í hlaupabólum. Þá var að sjálfsögðu komið að pabbanum, þrátt fyrir háværar yfirlýsingar um að hann myndi sleppa. Laugardeginum eyddi hann sem sagt í hitamóki með smá dashi af klósettferðum!

Er laust rúm á Kleppi fyrir örmagna þriggja barna móðir ;-)

7 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

jedúddamía allimalli ég segi nú ekki meir. Hvernig er þetta hægt??

Ég kvarta allavega ekki mikið meira í bili.

Stórt batnaðarknús yfir hafið og þið farið vonandi að hafa það betra...

7:43 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hvers lags er þetta, þetta er ljóta dj.......s pestin segi ekki meira!! Ömmu varð á orði verður amma ekki bara að skreppa aðeins út!! Alla vega vona ég innilega að þetta fari nú að rjátla af ykkur elskurnar, svo þið getið nú talað við okkur loksins þegar síminn kemst í lag.
Kveðja afi H

8:01 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Svei mér þá !!! Það er að minnsta kosti laust rúm á Melfa Lane fyrir þreytta húsmóðir sem þarf á orlofi að halda. Fjallaloftið í Whistler er healing get ég sagt þér af fenginni reynslu, vertu ávallt velkomin bestust.

Kossar og endalaus bataknús á línuna í B4 við sendum alla okkar orku.
Andrea og co

8:31 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Guð minn góður, þetta er hrikalegt ástand á ykkur. Verst að vera ekki í næsta húsi og geta hjálpað ykkur.

Saknaðarknús, Christel

10:10 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Baráttukveðjur frá annarri þriggja barna móður!

11:16 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Elsku kerlingin mín, endalaust knús til þín, þú ert algjör hetja. Vonum að nú sé málið búið.... Ekki gleyma að borða og drekka Gunnur mín. Knús og kram
Helga Atlad

12:22 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Það er ekkert neitt lítið lagt á ykkur greyin mín. Vona að ástandið sé orðið betra hjá ykkur. bestu kveðjur til ykkar frá okkur í Harlev
Dikka

9:38 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home