
Já hlaupabólan heldur áfram að ráða ríkjum hér í B4. Öllu verra tilfelli en í síðustu viku, margar stórar bólur og á ýmsum mis skemmtilegum stöðum! Bubbi byggir og Tommi togvagn hafa reynst okkur vel undanfarna daga og hjálpað til við að lina kláðapirring. Annars hefur litla systirin mest fengið að finna fyrir skapsveifluköstum bóludrengsins. Dótið sem hún situr með í mestu makindum sínum hverfur á undarlegan hátt, tímarit eitt fékk hún í hausinn þónokkrum sinnum, svo er stundum öskrað á hana ´gå ud´ þangað til skeifan lætur undan og tárin fara að renna! Það er ekki alltaf tekið út með sældinni að eiga eldri bróðir, sérstaklega ekki bróðir með hlaupabólu!
4 Comments:
Æi það er nú heldur ekki alltaf tekið út með sældinni að eiga litla systir.
Knús á línuna og vonandi að hlaupabólan sé á undanhaldi
Aldís
Ææ minn er glæstur með alla bólurnar sínar. Jahá það getur verið erfitt (já og var) að eiga yngra systkini.Þetta er bara bólupirringur í honum. Ástarkveðja amma M
OMG segi ég nú bara, það á ekki af ykkur að ganga.
Stórt batnaðarknús
Heppin að þau taka þetta út fyrir jólahátíðina (ef að um heppni má tala), systur tóku þetta út yfir jólin á sýnum tíma.
Það verður gott fyrir alla þegar þetta er búið, stórt knús til ykkar allra. Unnur tanta.
Skrifa ummæli
<< Home