þriðjudagur, nóvember 27, 2007

fyrir litla bró

Nei Dóri minn, ég skal ekkert tjá mig um stjórnmál hérna á blogginu. Ég fylgdist nú samt lúmskt spennt með dönsku kosningunum um daginn. Er ekki alveg að fatta þetta með Dansk Folkeparti, en það er önnur saga.

Eitthvað skemmtilegt...
Ég get sagt þér frá því að ég þjáist að krónísku minnisleysi þessar vikurnar. Fyrir allnokkru síðan var ég að keyra með fjölskylduna og bíllinn að renna á síðustu bensíndropana. Ég keyrði að sjálfsögðu á næstu bensínstöð og Gummsi skellti á tankinn. Þegar við vorum svo að keyra frá bensínstöðinni sagði ég orðrétt við manninn minn; Neihh! sjáðu Gummi bensínmælirinn hefur bara verið eitthvað bilaður, nú fer strikið upp...!!!
Ég var einfaldlega búin að gleyma því að við vorum að enda við að fylla á... :-)
Ég ætla ekki að reyna að lýsa svipnum á Gumma þegar ég sagði þetta :D

Var ég einhverntímann búin að segja þér söguna af því þegar ég gerði mig að fífli á leiklistarnámskeiði hjá ÍTR?! Fyrir framan troðfullan sal af fólki...
Skal leika það fyrir þig við gott tækifæri ;)

Sáttur???

12 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Priceless Gunnur, bara priceless!!
Hvernig væri að litli bró færi að blogga sjálfur??
Held að það leynist góður penni í stráknum eins og ykkur systrunum ;o)
Keep up the good work!!

Sigrún tanta

10:39 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

fékk mig altént til að hlæja!! hvort ég sé sáttur er annað mál, þetta er alla vega skárra en vælublogg :)

Man eftir þessu atriði í ÍTR - bara snilld :)

Ég hló hins vegar meira af þessu með bensínmælinn því það er eitthvað sem hendir mig reglulega - svona gleymsku/heimskumóment. Er það frá mömmu eða pabba? :)

Var í heimsókn hjá Lúlla áðan í nýja húsinu hans. Bróðir hans var í heimsókn og rifjuðust þá upp teiti af Dalbrautinni. Þá fékk maður alla vega nóg nammi fyrir að vera kyrr inni í herbergi - góð barnapía - góðir tímar!!
Annað hvort var þar dansæfing eða djamm, þorði aldrei fram (þetta rímar og allt - talandi um penna :) )!
Tímar Hemme gleymast seint hehe

Luv

p.s. Andrea engin stjórnmál!!! :)

12:10 f.h.  
Blogger Gunnur said...

Elsku kallinn minn, Hemme æfði aldrei heima í stofu! Á þeim tíma vorum við svo pró að við höfðum eigin æfingarhúsnæði ;) Þetta hafa verið Dangerous Dancers sem svifu um gólfið á Dalbrautinni og mútuði þér með nammi :-)

Vertu svo góður við aldraða systur þína hinumegin á hnettinum ;D

Pís

10:36 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég man vel eftir djammi og dansæfingum. Ég man líka vel eftir leiklistarafreki þínu og er búin að deila þessari sögu með mörgum, alltaf við jafnmikinn fögnuð...tær snilld.
Svo man ég líka alltaf eftir því þegar Andrea systir þín sagði mér að konur sem eru með barn á brjósti eru með nettan Alzheimer sjúkdóm. Þú getur sagt Gumma frá því ef hann er farinn að hafa miklar áhyggjur af þessu!

10:36 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

JÆJA, alltaf að koma fram í dagsljósið fleiri og fleiri sögur af saklausu börnunum á Dalbrautinni!! Það var kannski ekki eins saklaust helgarpartýið og af var látið þegar hurðin fauk um árið hmhmhm.
Kveðja HGH

10:53 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

aaaaaaahahahahahahaha

SNILLD

Meiri svona retro/nostalgíu hugleiðingar.

Nú er ég farinn að kannast við þetta blogg aftur hehe.

Fæ líklega pistil fljótlega frá þeirri gömlu þarna hinu megin á hnettinum. Það verður líka bara gaman - bíð eftir símtali Andrea og verð klár með málefnaskrá!! :)

luv

11:57 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Æ hvað þetta var gott er búin að hlægja mig máttlausa yfir þessu ....bara snilld, brjóstaþoka er það kallað og þú greinilega þjáist af því :)
Og hurðin um árið jú hún fauk upp:S

7:06 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Mér var alla vega sagt að segja það!! :) hehe

3:06 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

hahahahh Gunnur þú ert æði. Brjóstaþoka já, ég þjáist stöðugt af henni. Alla daga allt mitt líf. Hef reyndar tekist að snúa gleymskunni upp í ákveðið listform og nú er svo komið að fólk er hætt að tala um brjóstaþoku í mínu tilfelli enda kannski ekki viðeigandi þegar yngsta barnið er orðið 4 ára......en ég var nú með þær töluvert lengi á brjósti;)
Apasagan góða lifir góðu lífi og ég hef meira segja heyrt hana í partýi hjá manneskju sem þekkir þig ekki neitt......Spáðu í það.
Finnst frábært að Krissý sé að segja söguna góðu þar sem hún á nú ansi margar sem hún getur sagt af sínum eigin afrekum. hehehe
Segðu bróður þínum að hætta þessum rembingi, við aðþrengdar eiginkonur heimsins stöndum saman.

Glögg í kroppinn Gunnur mín, þig vantar meira glögg í kroppinn.

Aldís

10:12 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég allavega frussaði á skjáinn, hahahahahaha.
Þú hefur sennilega náð hámarki gleymskunnar, það getur ekki annað verið en þetta verði upp á við hjá þér eftir þetta. "Af botninum er besta spyrnan" á kannski við hér?

2:44 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

p.s
veit ekki afhverju nafnið mitt kom ekki fram í fyrri færslu en allavega kveðja frá Sif :-)

2:46 e.h.  
Blogger Gunnur said...

Gott að heyra að hrakfarir mínar skemmti fólki ;) Enda er apasagan efni í fínasta skets hehe!

Vinn í þessu með glöggið og spyrni fast í :-)

9:18 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home