sunnudagur, desember 16, 2007

eitt lítið jólatré

Við skelltum okkur til Skæring í dag í lítinn jólatrésleiðangur. Heilar hundrað danskar krónur kostaði þetta líka fína tré, sérvalið af vinkonunum Ylfu og Helenu og meistaralega sagað niður af pabbanum! Þar sem fjölskyldan fyllir eitt stykki Opel súperkagga urðum við að skipta Furu út fyrir vinkonuna góðu. Vagninn hennar Furu var því færður um nokkra metra og hún lúrði við dyrnar hjá Heidi á meðan vinkonurnar völdu jólatré ársins af mikilli kostgæfni :) Nói in the middle var ekki alveg jafn sáttur við leiðangurinn, fannst þetta óþarfa brölt í þoku og rökkri og litlir fætur áttu eitthvað erfitt með að fóta sig í skóginum. Honum var heldur ekkert vel við allar þessar trjágreinar og vesen alltaf að strjúkast við gallann hans og andlit. Pempía af bestu gerð þessi elska :-)

4 Comments:

Blogger Köben said...

Þið hafið vonandi ekki verið eins og Ómar hér um árið, þegar hann ætlaði að sýna börnunum hvernig ætti að gera þetta og mætti með mótorsögina til að fella tréð. Skilst að það hafi tekið brot úr sekúndu!
Við vorum reyndar löt í ár og keyptum út á horni, kostaði reyndar 300 kall, held að jólatré hafi aldrei verið eins dýr.
Kveðja frá Köben.

9:54 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Sæl veriði, þetta sýnist vera alveg þrælvel valið tré af þeim stöllum, er þetta blagreni?
Skil Nóa vel, það er hundleiðinlegt að labba í skógi, greinarnar að rekast í mann og stinga!!
Kv. Afi H

11:32 e.h.  
Blogger Gunnur said...

Við fengum nú bara lánaða gamaldags sög hjá þeim strákunum í Skæring. En hann Ómar er í umræðunni hjá okkur á hverjum degi! Hann Nói minn er nefnilega alveg með það á hreinu að græni kveikjarinn sem við kveikjum á kertunum með sé frá honum Ómari hans. Ómar á þennan kveikjara segir hann, en ég hef góðfúslega fengið leyfi hjá Nóa til ´að lána´ kveikjarann góða. Já hann passar upp á Ómar sinn ;-)

8:12 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Heyrðu góða. Jólakortið er sko bara víst komið hehehe. Fínustu myndir af ykkur öllum og rapport yfir árið (sem ég er samt ekki búin að lesa ennþá því maður má ekki lesa kortin fyrr en á aðfangadagskvöld eða jólanótt hehee).
Eitthvað hefurðu ruglast væna. Utan á kortinu varstu búin að skrifa I í Ísland. Og ekkert frímerki eða stimpill. Hmmmm þetta er duló...

7:09 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home