föstudagur, desember 07, 2007

andrea...

Ég skrapp í Netto í gær, sem er svo sem ekki frásögu færandi. Nema hvað, á leið minni í gegnum búðina rakst ég á tvær nýjar bækur sem komu út núna fyrir jólin. Ég gat ekki annað en brosað og hugsað til elskulegrar systur minnar ;) Bækurnar tvær innihalda ýmis Grimms- og H.C. Andersen ævintýri. Það skondna (eða ekki skondna) er að bækurnar eru tvær, önnur fyrir stráka og hin fyrir stelpur! Jú stelpu bókin er að sjálfsögðu bleik og inniheldur eingöngu prinsessu ævintýri, stráka bókin að sjálfsögðu blá og full af hetjusögum!

4 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Gósen-tíð fyrir skoðanasterkar systur.

Vona að þið séuð öll að hressast elskurnar.
Kveðja úr snjónum af Merkurtúninu.

10:21 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Svo heldur fólk því fram að litirnir og félagsmótunin sem þeim fylgir hafi bara ekkert að gera með framtíð barnanna okkar. Ég er orðin svo þreytt á þessu bulli - svei mér þá þetta er augljósara en að sólin sé gul.

Horfðu endilega á Silfrið sem var á sunnudaginn þar sem Magga Pála og Kolla Halldórs fara á kostum.

Kossar og knús úr sólinni í Vancouver.
Andrea femínisti og stolt af því !!

11:44 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Já, ég verð að segja að mér þótti þetta mjög sérstakt í Nettó. Þetta eru allavega ekki alveg bækurnar sem að ég myndi kaupa handa börnunum mínum....

... en ég hlakka þó til þess að hitta ykkur í luafabrauðsgerð á morgun;o)

Knús Heiðrún

12:14 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Sæl elskan.
Fékk jólakort frá þér (þekki alltaf skriftina) í síðustu viku og það var ekkert frímerki á því. Varstu á ferðinni góða????

Bestu kveðjur til stórfjölskyldunnar og hafið það gott yfir hátíðina.
Kv. Rannveig og co

3:26 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home