jólafrí
Loksins er fjölskyldan í B4 komin í jólafrí! Dásamlegt!
Gummi náði þó ekki að klára annarverkefnið sem skila á 3. jan. Þrátt fyrir langar setur fram á nótt. Hann hverfur því eitthvað upp í skóla milli jóla og nýárs. En þangað til er það fjölskyldu´hygge´, éta, drekka, spila, leika og já kannski smá lúrar inn á milli ;) Einstaka nætursvefn væri líka vel þeginn, af foreldrunum amk.
Nói in the middle hefur farið á kostum undanfarna daga. Vitleysan sem vellur upp úr krakkanum er endalaus. Stóru systkinin voru að hnuðlast í grjóna um daginn þegar Ylfa rekur allt í einu upp skaðræðisöskur er bróðir hennar var að bíta hana í bakið. Ég byrsti mig auðvitað við hann og sagði að svona gerði maður ekki. Þá leit hann á mig með hvolpaaugum og bros á vör og sagði; ´ég er baða kisaa´!!!
Um fimm leytið í morgun byrjaði hann að hnuðlast í mömmu sinni... Ég ætlaði eitthvað að reyna að nota jólasveininn og gera barninu grein fyrir því að fótaferðir á svona ókristilegum tíma væru ekki að skapi sveinanna. ´Nói veistu hvað, veistu hvað jólasveininn segir´... þá var gripið fram í fyrir mér og sagt með bros á vör ´HÓ HÓ HÓ´!!! Hvað getur maður sagt... Auðvitað fór ég á fætur með honum og gaf honum Weetabix í skál eins og hann bað um!

7 Comments:
Já hann er meira en yndislegur þessi middle drengur, bræðir alla. Amma er búin að hlægja mikið af þessu. Æi verst að tengdasonurinn skyldi ekki klára verkefnið, svo allir gætu "hygge" sig mellem jule og nytär. Stórt knus á alla. Amma M
var að keyra út jólakortunum eftir vinnu og kom svo heim og las bloggið um hann Nóa okkar en sætt, er ekki hissa að þú gefir honum weetabix kl. 5 að nóttu, já ég segi og skrifa nóttu, en hann er svo mikið krútt að honum fyrirgefst nú svona smáræði, sérstaklega þar sem hann er nú MIDDLE barn..... hafið þið það nú rosa gott og hyggið ykkur . knús og kossar amma Unna
Heheheh !!
Snillingur.... en mikið er ég fegin að þurfa ekki að gefa mínum börnum að borða kl. 5 á nóttunni.
VIð erum komin í Klettafjöllin og ætlum sannarlega að hugga okkur. Ég hugsa til Gumma á meðan ég sit yfir því verkefni sem ég náði ekki að klára.
Kossar og hygge-knús,
Andrea
hehe já Nói hefur svar við öllu, snillingur krakkinn!!
Ég er flogin í mitt jólafrí í dag, hafið það rosalega hyggelig kæra fjölskylda yfir hátíðirnar!!
Sigrún tanta
Þetta er bara fyndið, Nói í hnotskurn.
Saknaðarknús, Christel
Hann er nú bara yndislegur hann Nói, það er ekki nema von að hún Hekla mín sé hrifin af honum.
Best finnst mér þegar að hann segir "nei, nei" skælbrosandi;o)
Hlakka til að sjá ykkur á morgun .... og alla hina dagana..
Knús,
Heiðrún
Nú er klukkan nokkrar mínútur yfir sex... já að morgni til! Fura er búin að fá hafragrautinn sinn og situr og nagar gúrku af áfergju. Hin tvö sitja agndofa yfir Skoppu og Skrítlu í Þjóðleikhúsinu sem Jóli var svo sniðugur að lauma í skóinn hans Nóa! Morgun´hygge´ í B4!
Andrea mín mikið er ég líka fegin, svona barnanna þinna vegna, að þú þurfir ekki að gefa þeim morgunmat á nóttunni hehehe!
Eigið góða Þorláksmessu ;)
Skrifa ummæli
<< Home