jól og meiri veikindi
Fyrir ca þremur vikum síðan, er mesta hlaupabólu/ælupestar/niðurgangs fjölskylduveikindar geðveikin gekk yfir, hugguðum við okkur með því að törnin yrði amk yfirstaðin um jólin! Jeje um að gera að vera bjartsýnn...
Til að gera langa sögu stutta þá hefur Nói verið með bullandi hita í rúma viku og er kominn á pensilin vegna eyrnabólgu! Að sjálfsögðu smitaðist minnsti kroppurinn og er hún nú með hita og hor niðrá höku! Hér hefur því lítið verið lúrt og einstaka nætursvefn sem hljómaði svo freistandi ... ja kannski bara seinna ;)
En þrátt fyrir veikindi ofan á veikindi hafa jólin verið róleg og notaleg. Hér voru allir sofnaðir klukkan hálf tíu á aðfangadagskvöld eftir mikið stuð yfir pakkaflóðinu. Ylfa var við það að fara á límingunum á tímabili og skildi ekkert í bróður sínum sem undi sér sáttur eftir fyrsta pakkann. Hún vildi helst fá að opna fyrir alla, en það var pent afþakkað ;) En hún var líka spennt að gefa öllum sínar gjafir. Allra spenntust var hún þó að gefa pabba sínum gjöfina frá þeim systkinum, en hún vissi að pabba hennar hafði lengi langað í þrífót fyrir myndavélina. Hún hoppaði og skoppaði í kringum pabba sinn á meðan hann var að opna og þegar pabbi hennar spurði hana hvað þetta væri þegar hann var alveg að verða búinn, þá sagði hún; ´æi svona tréfótur´!!!
Þrífóturinn góði verður aldrei kallaður neitt annað en tréfótur!

2 Comments:
Æi elskurnar, eru þau ekki að hressast kjúklingarnir mínir. Yndisleg mynd af þeim, Fura mín flott í fallega kjólnum af mömmu sinni. Hér er að hvessa og spáir brjáluðu veðri á morgun. Hittum Drífu í dag og eru þau bara hress. Ég held að táningurinn sé að gera þau gráhærð. Ástarkveðja amma M
Gleðilegt nýtt ár elsku fjölskylda og góðan bata á nýju ári. Megi guð og gæfan fylgja ykkur í öllu því sem nýja árið færir ykkur. Hlakka til að sjá ykkur á Íslandi.
Kveðja Helga
Skrifa ummæli
<< Home