mánudagur, janúar 28, 2008

kveðjudagur

Ljúfri helgi er lokið hér í B4.
Einkasonurinn mætti galvaskur í vuggestuen í morgun, pensilínið farið að virka og þá er engin ástæða til að hanga heima. Minnsta skottið er ennþá með hita og ljótann hósta, orðin eldrauð og aum undir nefinu eftir endalausar snýtingar.

Það er annars sorgardagur hér á heimilinu í dag. Helena okkar flytur til Færeyja í dag og verður þar í heila sex mánuði! Sex mánuðir er ansi langur tími þegar maður er bara sex ára og þó það væru bara sex vikur er alltaf hart að þurfa að kveðja bestu vinkonu sína. Það má því fastlega búast við nokkrum tárum í dag og í kvöld. Og næstu vikur ef út í það er farið.

Mánudagar hafa annars fengið nýja merkingu hjá mér. Mánudagar eru nefnilega orðnir badmintondagar. Jájá mamman hristir möraðan afturendann í badmintontrimmi í þrusugóðum félagsskap. Þvílíkt góðar!

9 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Ég trúi nú að það verði viðbrigði hjá öllum á heimilinu ekki síst Ylfu minni þegar færeyska skottan hættir að koma og heilsa uppá fólkið. Vona að Ylfa mín verði fljót að taka gleði sína aftur. Það er hættulegt fyrir "fullorðið" fólk að sprikla of mikið, allavega byrja rólega.
Kveðja úr kuldanum.
Afi H

9:46 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Heldurðu ekki að "litla" barnið mitt sé komið með eyrnabólgu, mánuði frá táningsaldrinum!! Þetta átti maður þá eftir að upplifa.
Vonandi fara þau að hressast hjá þér
Bestu kveðjur frá Köben

4:06 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Við erum einfaldlega bestar í badmintoni!!! Þetta er sko bara gaman!!

En ég ætla bara svoleiðis að rústa þér næst!!! ;o)

Knús..
Heiðrún

4:24 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hey þarna væri ég til í að vera fluga á vegg !!

En liðleikinn og snerpan er væntanlega ættgengt er það ekki? Ef svo er hlýtur badmintonið að vera auðveld bráð (right) ;)

Kv.

11:48 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Dugleg ertu að vera komin í babbann ;-) Ánægð með þig, það er besti mörhristir í heimi. Er viss um að Helmut myndi standa á öndinni eftir augniblikshlaup á vellinum.

Vonandi fara allir að hressast, Dögun vaknaði hér kl. 6 að staðartíma í gærmorgun með ógurlegan eyrnaverk sem hefur aldrei gerst áður, þetta virðist vera trend í öllum heimshornum. En hún er að hressast.

Knús frá Van þar sem snjóar,
Andrea

4:18 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Bíddu.. skynja einhverja kaldhæðni hjá litla bróður?!?!

Hann ætti sko ekki roð í okkur á vellinum, svo mikið er víst!!

Hm.. af hverju trúir því enginn að við séum góðar í badmintoni?

En já.. ég rústa þér næst;o)

Heiðrún

5:40 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Stórt knús handa Ylfu frá mér.

kveðja
Christel

6:39 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

þið eruð örugglega bestar í badminton, væri alveg til í að tapa fyrir ykkur...

kveðja Helga

3:09 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég er svo viss um að þið eruð lang bestar af öllum húsmæðrum í Árósum og eitt veit ég um hana Gunni mína: Hún er þá allavega flottust!! Þú klikkar ekki á outfittinu ljúfan er það nokkuð?

Knús Aldís

8:05 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home