miðvikudagur, mars 26, 2008

pósthús???

Sonurinn síkáti var frekar mikið ósáttur við mömmu sína í gær.
Ég sótti hann í vöggustofuna og sagði honum að við ætluðum að labba á pósthúsið. ´jááá pósthúsið´ sagði hann með bros á vör og hafði greinilega ekki hugmynd um hvað það var. Við ætluðum nefnilega að senda pakka, afmælispakka, til ömmu Margrétar. Brosið stækkaði ennþá meira, ´jááá ömmu Margrétar´! Það hófst því mikil umræða um afmælispakka og jú hann á afmæli í maí og jú þá fær hann kannski bíla í afmælispakka. En þar sem þetta með pósthúsið var eitthvað að vefjast fyrir honum spurði hann mig eftir langa þögn, með sólskinsbros allan hringinn ´eigum við að knúsa hana´? Ha, knúsa hverja? Fura er sofandi við getum ekki knúsað hana núna. ´Neijj eigum við að knúsa ömmu M´? Svona spurningar geta verið eins og högg í hjartað! Nei kallinn minn, amma M er á Íslandi. Svo ég reyndi að útskýra þetta með pakkann og pósthúsið aðeins betur. Svo loksins á leiðarenda segi ég honum að við séum komin á pósthúsið, þá lýstust bláu augun upp og gleðin í röddinni leyndi sér ekki, ´jááá er amma Margrét hérna inni´.
Øv, øv, ég hefði betur sleppt því að segja honum erindið á pósthúsið!!!

4 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

hæhæ kæra fjölskylda, gleðilega páska. Nú fer að detta inn póstur til ykkar og spennan eykst með hverjum deginum. Gerið ykkur klár fyrir mikla búninga.......
Kveðjur Dikka og Gaui

3:22 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Átti hér svipað samtal við Dögun í morgun sem fannst tilvalið að nota tækifærið og skreppa í köku til ömmu M í tilefni af afmælinu á morgun. Nú er svo lítið mál að "skreppa" til Íslands - þó pabbinn sé komin með nóg af flugi og flugvöllum fyrir árið !! Henni fannst því heldur súrt að skilja að það væri ekki hægt að fara í afmælið í þetta skiptið.

Knús til sonarins síkáta og ykkar hinna,
Andrea og co.

8:43 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Til hamingju með afmælið amma M!

8:29 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Æi hann er nú meira krúttið....
Það verður gott að komast í ömmufaðm í sumar.

Fermingarbarnið er svo forvitið að fá að vita hvað leynist í pakkanum, allt að verða tilbúið og við orðin voða spennt verst að þið getið ekki verið hér hjá okkur á sunnudaginn.

kveðja af Hagaflötinni.

12:12 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home