ylfa snilli
Um daginn las ég fyrir Ylfu söguna um Litlu lirfuna ljótu. Skemmtileg saga sem að sjálfsögðu vakti miklar pælingar og umræður. Ylfu fannst frekar illa farið með aumingja lirfuna og vorkenndi henni mikið. Við ræddum þetta heilmikið, að engin er eins og það að vera öðruvísi þarf ekki að þýða að maður sé slæmur. Sumir eru litlir, aðrir stórir, dökkhærðið, rauðhærðir, hvítir, svartir osfrv. Ylfa á margar vinkonur og bekkjarfélaga sem koma frá ólíkum menningarheimum, eru öðruvísi en hún í útliti og því auðvelt fyrir hana að spekúlera þessa hluti. En hvað haldiði að litla druslan hafi sagt við mig...; já mamma, alveg eins og þú ert með soldið stóran rass en samt elska ég þig!!!

10 Comments:
hahhahah og ég líka Gunnur mín. Elska þig og þinn Stóra rass. (right)
Knús í kotið
Aldís
Gaaaaaaaaargandi snilld!!!!!!!!!!!
Sammála Krissý, Ylfa snilli :-)
Fanney benti mér einmitt á það um daginn á penan hátt hvort ég ætlaði ekki að láta setja svona fínar neglur á mig???? Ég skildi ekkert í því hvaðan það kæmi en þá höfðu leikskólakennararnir verið í einhverju dekri og mín greip það á lofti.
Heyrumst um helgina,
Unnur
Hahahahh !! Þetta er yndislegt en ég held að þetta segi meira um hvað þú talar mikið um rassinn frekar en að hann sé eitthvað ógurlega stór..
En þú ert best og rassinn á þér líka !!
Knús Andrea
Ha, ha, ha, bara snilld!!
En ég verð að vera sammála henni Andreu.. ég held að ástæðan sé að mamman sé að kvarta yfir einhverjum ímynduðum rassi;O)
Knús...
Heiðrún
híhí ég get sko alveg lofað ykkur að þetta eru hreinar skoðanir Ylfu! Hún skilur til dæmis engan veginn hvernig mér dettur í hug að vera með stutt hár! Maður dansar jú ekki með stutt hár eða hárið í fléttu :-)
HAHAHA Þau eru skemmtilega hreinskilin litla fólkið...ekki það að þú sért með stórann rass Gunnur (allavega ekki síðast þegar ég sá þig) en já Ylfa er snellingur!!
Yfir og út,
Sigrún frænka
HA HA HA HA... æ hún er yndisleg.
Hún hefur greinilega ekki séð minn hehe.
Bestu kv. Rannveig
Ain´t that the truth !!
Skrítið hvað allir virðast reyna að ljúga að þér, nema Ylfa :)
Elska þig reyndar líka og geimaldið þitt hehe
kv. Lille bro með lille bossen
Gangtu nú alveg frá mér, óborganlegt :-)
Bestu kveðjur,Sif
Skrifa ummæli
<< Home